Flutningur.Sama hversu flott forrit þú notar eða hversu glæsilega kynningu þú útbýrð þá veltur allt á þér sjálfum. Flutningurinn verður að vera sterkur og góður svo þú getir hitt í mark meðal áheyrenda.
|
Hvernig á að beita röddinni?
Ef rödd þess sem kynnir er veik á fólk það til að hætta að hlusta. Það getur líka reynst þeim sem hafa brennandi áhuga á kynningunni erfitt að ná öllu sem þú vilt koma á framfæri.
|
|
Gott augnsamband
Augnsamband er eitthvað sem getur skipt lykilmáli þegar kemur að góðri kynningu. Líkurnar á því að fólk hlusti aukast þegar þú horfir í augun á því.
|
Ekki lesa |
Kynntu þér það sem þú ert að kynna |
Flestir sem þú munt halda svona kynningu fyrir geta lesið og því er óþarfi að lesa upp fyrir þá punktana í kynningunni þinni. Þeir gera það sjálfir. Þú skalt frekar tala í kringum punktana og það sem er mikilvægara; tala við áhorfendur. Þannig nærðu þeim á þitt band.
|
Það er fátt sem róar taugarnar meira fyrir svona kynningu en að vita hvað þú ert að fara að tala um. Það að geta svarað spurningum hispurslaust án þess að þurfa að leita að svarinu getur skipt sköpum um það hvort að þú ert tekinn alvarlega eða ekki. Því skaltu kynna þér vel hvað það er sem þú ert að kynna.
|
Æfðu þig
Æfingin skapar meistarann! Fyrir suma getur þetta verið taugatrekkjandi eða þeim finnst þetta óþarfi. En reynslan sýnir að mí því að æfa sig verður fólk tilbúnara til þess að takast á við óvæntar aðstæður og getur komið efninu frá sér á öruggari máta.
|
Góð og fyndin saga |
Horfðu á aðra kynna |
Að koma með einhverja góða og fyndna sögu getur lífgað upp á kynninguna og fengið fólk til þess að fylgjast betur með. Rifjaðu upp hvort ekki sé einhver fyndin saga á bak við það sem þú ert að kynna. Ef þér dettur ekkert í hug má fara á netið og athuga hvað þú finnur þar. Smá hlátur getur blásið lífi í kynninguna.
|
Það sjónarmið að maður læri af öðrum á vel við hér. Horfðu á aðra kynna til að sjá hvernig þeir koma fram. Reyndu að greina það sem þú sérð. Hvernig talar þetta fólk, horfir, tjáir sig og hreyfir. Að horfa á aðra kynna gerir þér kleift að apa upp eftir þeim og læra hvernig má standa að árangursríkri kynningu.
|
Mikilvægi slökunnar
Stressaður kynnir er yfirleitt ekki besti kynnirinn. Þegar maður er stressaður eru meiri líkur á því að maður verði málhaltur. Því er gott að koma inn í kynninguna sultuslakur. Til eru margar mismunandi leiðir til þess að slaka á og því þitt að finna það sem helst virkar fyrir þig.
|
|