Hér á eftir koma nokkur matsblöð til nota fyrir kynningar. Í upphafi verkefnavinnunnar er gott að fara yfir námsmatið með nemendum svo þeir geri sér grein fyrir því að hverju er stefnt og hvað er verið að meta. Hægt er að nota þessi eyðublöð fyrir kennara-, jafningja- og sjálfsmat. Það eina sem þarf að gera er að hala niður skjali, opna það í Microsoft Word, breyta og bæta eftir þörfum eða prenta beint út. Svo má líka varpa skjali upp á tjald eða á skjá!
Í töflureiknisskjalinu úr Microsoft Excel hér að neðan er að finna matsviðmið sem gott er að styðjast við þegar verið er að meta kynningu. Þetta er aðeins efnismeira en það sem er að finna neðar á síðunni og því gott að kíkja á þetta fyrst. Í skjalinu má líka slá inn heildarstig og fá sjálfkrafa út talnaeinkunn í þar til gerðum reit. Þú eyðir honum bara út ef þú vilt heldur nota aðra aðferð við niðurstöðu matsins.
namsmatstafla_mat_a_kynningu.xlsx | |
File Size: | 10 kb |
File Type: | xlsx |
Hér er sama yfirlit en ekki með þessum reiknieiginleikum í ritvinnsluskjali fyrir Microsoft Word.
namsmatstafla_mat_a_kynningu_ritvinnsluskjal.docx | |
File Size: | 14 kb |
File Type: | docx |
Hérna koma tvö eyðublöð þar sem valið er annað hvort "Já" eða "Nei" eftir því sem við á. Efra matið er eilítið efnislægara á meðan það neðra gefur kynningunni sjálfri meiri gaum.
nams1.docx | |
File Size: | 12 kb |
File Type: | docx |
nams2.docx | |
File Size: | 12 kb |
File Type: | docx |
Næstu tvö eyðublöð eru svipuð en annað þeirra notar skalann frá 1 og upp í 5 á meðan það seinna býður upp á skriflega umsögn. Þættirnir eru ekki allir þeir sömu en hægt að taka þá út eða bæta við eftir þörfum.
nams3.docx | |
File Size: | 12 kb |
File Type: | docx |
nams4.docx | |
File Size: | 12 kb |
File Type: | docx |
Að lokum er mjög einfalt eyðublað þar sem hægt er að skrifa inn í hvað sé verið að meta og gefa skriflega umsögn. Þetta eyðublað er mjög sniðugt að nota í upphafi verkefnisins og fá hugmyndir frá nemendum um hvað skuli meta.
nams5.docx | |
File Size: | 12 kb |
File Type: | docx |
Svo er Veraldarvefurinn fullur af góðum hugmyndum og skjölum sem hægt er að nýta sér. Hér á eftir koma nokkrir hlekkir sem benda á slíkt efni:
Kothuria
Discovery Education
ESL printables
vitrinebr.info - Powerpoint Template Download
og auðvitað, besti vinur margra kennara, Pinterest!
Kothuria
Discovery Education
ESL printables
vitrinebr.info - Powerpoint Template Download
og auðvitað, besti vinur margra kennara, Pinterest!