|
PosterMyWall er snilldar hugbúnaður til þess að útbúa veggspjöld á netinu. Hægt er að velja úr fullt af sniðmátum til þess að gera flott veggspjöld!
|
Þegar búið er að skrá sig inn á síðuna er hægt að velja My Stuff ef þú hefur nú þegar gert veggspjald og vilt halda vinnunni áfram eða Create a Design til þess að byrja á nýju.
Hægt er að velja úr fullt af sniðmátum. Fyrst færðu upp alls konar flokka og þú velur þann sem hentar best.
Þetta sniðmát fann ég í Education (menntun). Til þess að breyta textanum þá smellirðu á þann texta sem þú vilt breyta og setur inn þinn eigin. Einfalt og þægilegt!