|
Með PowToon er auðvelt að útbúa líflegar hreyfimyndir í staðinn fyrir hefðbundna glærupakkann. Það besta við PowToon er að það er mjög auðvelt að vinna í forritinu og þú þarft ekki að hafa mikla reynslu að baki til þess að búa til flottar kynningarmyndir. Minni útgáfa af forritinu er gjaldfrjáls en ef maður vill útbúa myndir sem eru lengri en 5 mínútur þarf að borga.
|
Leiðbeiningar með skjámyndum
Næst velurðu Customize a popular template til þess að geta valið úr sniðmátum og gert glæsilega kynningu.
Þú getur valið úr hvaða flokki þú vilt að sniðmátið þitt komi.
Þegar búið er að velja flokk geturðu smellt á myndirnar og valið annað hvort Preview til þess að forskoða eða Use til þess að nota það sniðmát.
Svo fyllirðu bara inn í sniðmátið!
Vinstra megin á myndinni (númeruðu myndirnar) eru glærurnar. Þú velur hvaða glæru þú vilt vinna í og svo á stærri myndinni geturðu breytt efni glærunnar.
Vinstra megin á myndinni (númeruðu myndirnar) eru glærurnar. Þú velur hvaða glæru þú vilt vinna í og svo á stærri myndinni geturðu breytt efni glærunnar.
Svo er það bara að prófa sig áfram!