|
Prezi er mjög skemmtilegur kostur ef þú ert að kynna eitthvert hugtak eða fyrirbæri. Þetta einstaka forrit vinnur með kynningarnar á þann máta að í raun er öll kynningin á einni mynd sem þú þysjar inn og út af til þess að sýna einstaka þætti í kynningunni. Þetta leiðir af sér kynningu sem getur orðið lífleg og er með grafísku sniði. Ég mæli þó ekki með þessu forriti ef þú þarft að vera með mjög fjölbreytta og breiða kynningu því þá gæti forritið takmarkað þig að einhverju leyti.
|
Skjámyndir frá notkun
Upphafssíða Prezi kemur mjög vel út. Hún er einföld og stílhrein sem einfaldar manni að finna þær upplýsingar sem maður þarf. Auðsætt er hvar maður byrjar ferlið.
Þegar þú skráir þig inn færðu þrjá möguleika: Facebook, LinkedIn eða að setja inn netfangið þitt. Þetta þýðir það að ef að þú hefur skráðan aðgang að annað hvort Facebook eða LinkedIn geturðu skráð þig inn í gegnum þau forrit. Persónulega kýs ég að nota ekki Facebook þegar ég er að skrá mig inn á svona forrit af því að ég reyni að halda því frá vinnu og aðeins fyrir persónulega notkun. Oft er hægt að skrá sig í gegnum Google en þann kost vantar hérna. Ég notaði samt netfangið mitt frá Google og skráði það hér inn.
Hérna er hægt að sjá vinnusvæðið sem þú hefur þegar þú byrjar á nýju verkefni. Svona lítur það út þegar þú notast ekki við neitt þema heldur byrjar bara á ,,tómu blaði".
Hér fyrir neðan er svo skjáskot af því hvað það kostar ef þú vilt notast við eitthvað annað en fríu útgáfuna. Ég mæli þó alltaf með því að nota gjaldfrjálsu útgáfuna fyrst í einhvern tíma áður en farið er í það að fjárfesta í þeim stærri eða öflugri, oft er sú fría bara nóg.