Hugarkort
Áður en þú byrjar að afla upplýsinga er gott að skipuleggja hugsanir þínar. Um hvað er kynningin? Hver eru aðalatriðin? Hvað vil ég að komi fram?
Góð leið til þess að koma skipulagi á þessi atriði er að gera hugarkort. Hugarkort auðveldar manni að sjá fyrir sér efnið þar sem maður setur það fram með myndrænum hætti. Því er gott að nýta sér það í hugmyndavinnu og getur það auðveldað manni vinnuna sem er framundan.
Ef þú vilt fræðast meira um hugarkort þá geturðu skoðað þessa tvo hlekki:

Veflægur hugbúnaður fyrir hugarkort
Á iMindMap er hægt að gera hugarkort á netinu, frítt. Hér til hliðar geturðu horft á kennslumynd um hvernig þú ferð að því.
|
|
Skjáskissur
Önnur leið til að vinna að hugmynd að kynningu er að rissa upp grófar skissur að glærum eða skjámyndum, búa til það sem á íslensku hefur verið kallað söguborð eða á ensku sögutafla (e. storyboard). Þessi aðferð er mikið notuð í kvikmyndagerð. Þetta þarf ekki að vera flókið, bara gróft riss og eitt eða fleiri stikkorð fyrir hverja skjámynd á pappír eða einfaldlega í glærukynningarforriti. Þar má byrja á að henda upp öllum glærunum eða skjámyndunum, setja inn stikkorð um texta og myndir sem þar ættu að vera og færa til glærurnar þar til komin er góð beinagrind að kynningu!
Leitarvélar
Þegar þú ert búinn að gera þér einhverja hugmnd um efnið og að hverju þú ert að leita er komið að því að hefja upplýsingaleitina!
Margar mismunandi leitarvélar er að finna á netinu. Hér verða settar fram fimm almennar leitarvélar og fimm leitarvélar af fræðilegum toga.
Margar mismunandi leitarvélar er að finna á netinu. Hér verða settar fram fimm almennar leitarvélar og fimm leitarvélar af fræðilegum toga.