Fyrst þarf að skrá sig inn á síðuna. Það er gert með því að ýta á Get started now hlekkinn. Næst er sett inn netfang og lykilorð.
Til þess að byrja á nýju verkefni er valið Create New
Þá kemur upp valmynd og þarf að velja Presentations.
Þá kemur upp val um alls konar sniðmát.
Ýttu á myndina þegar þú hefur valið þér það sniðmát sem þér finnst flottast eða henta best.
Ýttu á myndina þegar þú hefur valið þér það sniðmát sem þér finnst flottast eða henta best.
Þegar búið er að velja sniðmát kemur upp upphafssíða kynningarinnar. Þar er gott að setja stóran og einfaldan titil, nafnið þitt eða nöfnin þeirra sem eru í hópnum og jafnvel lýsandi mynd (ekki nauðsynlegt).
Aðeins þarf að ýta á fyrri titillinn (á þessari mynd Group project) til þess að geta breytt honum.
Þegar bæta á við nýrri glæru er farið í Add a Slide og kemur þá upp valmynd með mismunandi gerðum af glærum. Þú getur valið þá glæru sem hentar best.
Síðan skaltu bæta við glærum. Á hverri glæru er gott að hafa titil sem lýsir innihaldi glærunnar og nokkra einfalda punkta um efnið.
Dæmi um glæru:
Íslensku jólasveinarnir
· Þeir eru þrettán talsins
· Fyrstur kemur Stekkjastaur
· Síðastur kemur Kertasníkir
· Foreldrar þeirra eru Grýla og Leppalúði